Uniconta áskriftarverð byggist á fjárhagsfærslumUniconta er með þrjú mismunandi mánaðargjöld sem byggja á því hversu margar fjárhagsfærslur eru færðar inn á ári. Sjá má mismunandi verðdæmi hér. Allir notendur Uniconta greiða mánaðarlega áskrift sem samsvarar raunverulegri notkun þeirra.Hvernig fjárhagsfærslur eru taldarUniconta telur fjölda fjárhagsfærslna sem færðar hafa verið inn á síðustu 12 mánuðum, frá lokum fyrri mánaðar. Heildarfjöldi fjárhagsfærslna er þannig uppsöfnun á fyrri 12 mánuðum. Þetta þýðir að ef fjöldi fjárhagsfærslna sem færðar eru inn á síðustu 12 mánuðum fellur niður eða fer yfir áskriftarþröskuldinn þá breytist mánaðarlegt áskriftarverð sjálfkrafa í lægra/hærra áskriftarverð þann mánuðinn. Þannig að mánaðarlegt áskriftarverð samsvarar alltaf notkun fyrri 12 mánaða. Jafnvel þótt nýir viðskiptavinir viti að þeir munu færa inn fleiri fjárhagsfærslur en grunnáskriftin nær til verður það ekki reikningsfært fyrir hærri áskriftarþröskuld fyrr en í mánuðinum sem þau fara yfir árleg mörk grunnpakkans. Til að telja fjölda fjárhagsfærslna sem færð hafa verið inn á síðustu 12 mánuðum skal fara í Fjárhagur/Skýrslur/Færslur eins og sýnt er á skjámyndinni hér að neðan.![]() ![]() |
Almennir tenglar Almennar ábendingar Snið Sniðmát Leitin í Uniconta Viðhengi Sía/Hreinsa síu |