Stafræn fylgiskjöl
Uniconta vefgáttin gerir þér kleift að taka myndir með farsíma af kvittunum eða reikningum sem koma inn á borð þitt daglega og senda inn í Uniconta kerfið.
Velja skal "Stafræn fylgiskjöl" og ef bæta á við nýju viðhengi (kvittun/reikningi) skal smella á [Bæta við]

Skjámyndin hér að neðan opnast. Smella á "Fletta". Nú hefur þú möguleika á að velja mynd úr símanum þínum,
eða taka nýja mynd strax.

Svo er hægt að fylla út, "Innihald, Dagsetningar, Upphæðir o.s.frv."
Smella á [Vista]
Mynd af viðhengjum úr farsíma eða spjaldtölvu
Hér er hægt að bæta við myndum beint úr farsíma eða spjaldtölvu í gegnum vefgáttina.
Þetta opnar vefgáttina úr farsímanum þínum eða spjaldtölvunni, þar sem þú skráir þig inn með notendaupplýsingum þínum.

Eftir innskráningu skal smella á táknið

til að bæta við viðhengi.

Þetta mun sýna eftirfarandi skjámynd þaðan sem hægt er að bæta við umbeðnum viðhengjum.
Smella á [Fletta]

Myndavél farsímans er valin og þá er hægt að taka mynd af viðkomandi reikningi eða kvittun og senda inn í Uniconta.
Eftir að það er gert verður hægt að hlaða fylgiskjalið inn.

Svo er hægt að fylla út, "Innihald, Dagsetningar, Upphæðir o.s.frv."
Smella á [Vista]
Fylgiskjalið er nú tiltækt í
Stafræn fylgiskjöl (innhólf)