Ferlið er:
- Einföld uppsetning reikninga í gegnum Snið reikninga
- Stofna Snið flokka sem notað er fyrir valda viðskiptavini eða lánardrottna
- Klára Uppsetningu tölvupósts til áframsendingar á ýmsum skjölum
- Reikning/kreditreikning
- Afhendingarseðil
- Pöntunarstaðfestingu
- Tilboð
- Innkaupapöntun
- Innkaupabeiðni
- Innkaupareikning
Einföld uppsetning reikningssniðs
Til þess að setja upp snið reikninga- skal fara í Viðskiptavinur/Viðhald/Snið reikninga
- og stofna nýtt með því að smella á 'Bæta við' eða 'Breyta' sniði sem er til staðar.





Setja inn merki (logo) fyrirtækis
Merki (lógó) setur þú inn í gegnum Fyrirtæki/Fyrirtækið mitt/Merki fyrirtækis.
Smella á 'Bæta við' og hægt er að velja um þrjár gerðir merkja:
- Verkfæraslá (sett til vinstri efst á Uniconta)
- Teikn (ekki notað)
- Merki fyrirtækis (Notað fyrir skjöl í Uniconta, þ.m.t. reikninga, pöntunarseðla o.s.frv.)

Setja inn vatnsmerki
Vatnsmerki er mynd sem birtist á miðjum reikningi. Það er sniðugt að hafa vatnmerkið í ljósum lit til þess að hægt sé að lesa texta sem prentaður er yfir vatnsmerkið. Það getur verið gott að fá grafískan hönnuð til að aðstoða. Vatnsmerki getur verið litið merki eða heil síða með merki fyrirtækis efst og upplýsingum um fyrirtækið neðst Lesa meira um hvernig á að stofna vatnsmerki hér...Uppbygging á sniði reikninga
Snið reikninga byggir á hnitakerfi (raðir og dálkar). Fyrir A4 blað eru hnitin (1, 1) efst í vinstra horni og (150, 130) neðst í hægra horni. Lína 130 er lægsta lóðrétta hnitið en gott er að miða við að texti fari ekki neðar en í línu 110 til að tryggja að hægt sé að prenta reikninginn á venjulegum prentara. Athugaðu að þú getur sett inn frjálsan texta neðst á blaðið í gegnum Snið reikninga. [caption id="attachment_11535" align="aligncenter" width="600"]
Prófun á Sniði reikninga
Til að skoða prufu af reikningssniðinu er notað flýtireikning. Flýtireikningur er að finna undir Viðskiptavinur/Flýtireikningur.- Velja skal Lykil
- Velja svo Sniðið sem á að prófa
- Bæta við vörulínu með magn og verð.
- Smellt er á Stofna reikning
- MUNA! Velja Hermun og smella á Stofna