Yfirlitið „Talnagögn sölumaður/viðskiptavinur“ er notað til að fá yfirsýn yfir sölu eftir starfsmanni og viðskiptavini
Talnagögn sölumaður/viðskiptavinur reiknar talnagögn út frá birgðafærslum.
ATH! Ef stemmt er af á móti fjárhag þarf að hafa í huga uppsetningu viðskiptavina-, lánardrottna- og vöruflokka, sérstaklega ef bókun viðskiptavina og lánardrottna hefur verið sett upp á vöruflokkunum.
Veldu Birgðir / Skýrslur / Talnagögn / Talnagögn sölumaður/viðskiptavinur
Sjálfgefið sýnir skýrslan lista yfir alla viðskiptavini sem hafa keypt eina eða fleiri vörur, skipt eftir starfsmanni. Öll kaup viðskiptavinanna eru sýnd samanlögð, þannig að aðeins ein lína birtist fyrir hvern viðskiptavin og hvern starfsmann/sölumann.
Einnig er hægt að nota talnagögnin undir Fyrirtæki/Starfsmenn og velja Skýrslur/Talnagögn sölumaður/viðskiptavinur.