Inngangur
Nýja kröfukerfið í Uniconta er uppfærsla og lagfæring á eldra kröfukerfi sem var útfært fyrir
staðalinn IK 1.40 frá RB. Sá staðall gerði ráð fyrir notkun á svokölluðum greiðslu- og kröfuskrám
sem geymslu á milli Uniconta og fyrirtækjabanka.
Nýja kröfukerfið notar hvorki greiðslu- né kröfuskrár heldur sambankavinnslur bankanna þannig
að notandinn er betur meðvitaður um kröfurnar sem hann sendir frá sér. Með nýja kröfukerfinu
má fá upplýsingar eins og dráttarvexti, fjármagnstekjuskatt, seðilgjöld og greiðsludag strax inn í
Uniconta og bóka með einum músarsmelli.
Sé notandi búinn að vera að nota gamla kröfukerfið mælum við með því að ganga frá öllum reikningum og senda kröfur til bankans áður en byrjað er með nýja kröfukerfið.
Uppsetning
Fyrst þarf að fara í Afstemming banka undir Fjárhagur og bæta við bankareikningi til að nota með
kröfukerfinu.
![]()
Næst þarf að fara í Viðskiptavinur/ Viðhald/Greiðsluskrársnið og bæta við nýju
greiðsluskrársniði og tengja það við bankareikninginn sem var stofnaður hér á undan.
![]()
Smella svo á Valkostir og fylla út seinni skjámyndina.
Hér þarf að velja viðskiptabankann og bókunarstýringu fyrir dráttarvexti, fjármagnstekjuskatt og
seðilgjald.
Bankanúmer er númer útibús bankans sem geymir greiðslureikninginn. Auðkenni er svo sérstakt
þriggja stafa númer viðskiptabankans, oftast; 037 fyrir Landsbankann, 001 hjá Arion og IAA hjá
Íslandsbanka.
Eindagaregla er fjöldi daga frá gjalddaga og tilgreinir dagsetningu eindaga. Það er óþarfi að setja
breytingareglu því breyta má kröfu hvenær sem er og lágmarksupphæð er lágmarksskuldastaða
sem viðskiptamaður þarf að hafa svo smíðuð sé á hann krafa.
![]()
Ath. Það þarf að setja þetta greiðslusnið inn á viðskiptavini sem vilja fá kröfur í bankann sinn.
Við mælum með að hafa eingöngu eitt greiðslusnið, nema ef þörf er á að stofna kröfur með
mörgum auðkennum eða í mismunandi bönkum.
Að lokum skal fara í Viðskiptavinur/ Skýrslur/Innheimtukerfi og smella þar á hnappinn
Stillingar í tækjaslánni. Hér skal setja inn tengiupplýsingar svo kröfukerfið geti sent kröfur í
bankann og móttekið greiðslur ásamt greiðsluskrársniðinu sem á að nota.
![]()
Eindagi og gjalddagi
Í eldra kröfukerfi þurfti að setja eindagafrest á greiðsluskrársniðið en núna má setja hann á
greiðsluskilmálann og þá birtist hann á rafrænum reikningi og í útprentun t.d. í PDF.
Mælt er með að setja eindagafrest og gjalddaga á greiðsluskilmála og hætta að nota þá á
greiðsluskrársniðinu.
Greiðsluskilmáli
Í reikningsviðskiptum þá stjórnar greiðsluskilmálinn gjald- og eindagafresti kröfu og því hvort
veita eigi afslátt sé krafa greidd snemma. Einnig stjórnar hann því hvort stofna skal kröfu og
senda til banka strax þegar reikningur er gerður.
Til að stofna eða breyta greiðsluskilmála skal smella á Fjárhagur/Viðhald/Greiðsluskilmálar
og smella á “Bæta við” í tækjaslá.
![]()
Svæðin sem eru notuð í kröfukerfinu eru aðgreind með rauðum kassa. Dagafjöldi gefur til kynna
gjalddaga kröfu og Eindagafrestur segir til um eindaga kröfu. Til að fá útskýringar á öllum hinum
svæðunum skal smella hér.
Kröfusmíði
Kröfukerfið vinnur á opnum færslum viðskiptavina. Opnar færslur eru færslurnar sem birtast á
skjánum þegar smellt er á Innheimtukerfi og svo á hnappinn Leit í tækjaslá. Þessar færslur geta
verið reikningar, kreditreikningar og greiðslur (t.d. innborganir).
Kröfur má smíða með tvennum hætti; hefðbundið, svipað og í eldra kröfukerfi þ.e. sameina
reikninga á eina kröfu og einn reikningur per kröfu. Einnig er val um að krafa sé alltaf smíðuð um
leið og reikningur er stofnaður, sjá kafla “Kröfusmíði strax á eftir reikningi”.
Hefðbundin kröfusmíði
Fyrst skal smella á Leit til að birta allar opnar færslur út frá gjalddaga.
![]()
Ef það eru margir reikningar á sama viðskiptavini er hægt að smella á ‘Sameina greiðslur’ til að
smíða eina kröfu fyrir t.d. nettó-úttekt mánaðar. Forsendurnar fyrir því að hægt sé að sameina
greiðslur er að reikningarnir séu með sama gjalddaga.
Síðan þarf að smella á aðgerðina ‘Smíða kröfur’ til að stofna kröfur og skoða með því að smella á
‘Kröfuskrá’.
Greiðslustöður
Það eru sjö greiðslustöður sem hver krafa getur haft; Stofnuð, Breytt, Felld, Send,
Milliinnheimta, Greidd og Bókuð.
Ný-smíðuð krafa fær greiðslustöðuna Stofnuð sem þýðir að það er ekki búið að senda hana í
bankann. Þegar hún er svo send í bankann fær hún stöðuna Send.
Ef kröfu er breytt þá fær hún greiðslustöðuna Breytt og svo Send þegar búið er að senda
breytinguna í bankann.
Ef krafa er með greiðslustöðuna Felld þá er hún ennþá til í bankanum og þarf þá að smella á
aðgerðina Felldar á tækjaslá til að fella hana í bankanum.
Fái krafa stöðuna Milliinnheimta þá er hvorki hægt að breyta né fella hana en um leið og hún er
greidd fær hún greiðslustöðuna Greidd og þá má bóka hana með aðgerðinni “Bóka greiðslur”
sem setur greiðslustöðuna Bókuð á hana.
![]()
Kröfusmíði strax á eftir reikningi
Til viðbótar við hefðbundna kröfusmíði má láta Uniconta stofna kröfu og senda til banka strax
þegar reikningur gerður.
Til að gera þetta þarf greiðsluskilmál að hafa hakað við Senda kröfu til banka.
Síðan þarf að bæta greiðsluskilmálanum inn á viðskiptavininn (í reitinn Greiðsla) eða bæta
honum inn á sölupöntun eða reikning í það skipti sem stofna á kröfu um leið og reikningur er
stofnaður.
![]()
Ef ekki tókst að senda kröfu til banka þá kemur það ekki fram þegar reikningurinn er gerður
heldur þarf að fara í Kröfuskrá og skoða dálkinn “Kerfisupplýsingar” til að sjá hvað olli því að
krafan fór ekki í bankann.
Sækja greiðslur
Þessi aðgerð athugar annars vegar hvort einhverjar kröfur séu greiddar eða komnar í
milliinnheimtu og svo hins vegar hvort það séu komin einhver gjöld og dráttarvextir á þær.
Greiðslur eru eingöngu athugaðar á þeim kröfum sem hafa greiðslustöðuna Send eða
Milliinnheimta og þær sem hafa verið greiddar fá greiðslustöðuna Greidd.
Þegar krafa er greidd þá er ekki hægt að sækja greiðsluna fyrr en næsta bankadag nema hjá Arion
banka, þar berast þær strax.
Bóka greiðslur
Þegar greiðslur hafa borist þá þarf að bóka þær í dagbók. Til þess er aðgerðin Bóka greiðslur
notuð. Hún tekur allar kröfur sem hafa greiðslustöðuna Greidd og stofnar dagbókarlínur í
dagbókinni sem tilgreind er á greiðsluskrársniðinu sem er í notkun.
Við skráningu í dagbókina er greiðslutilvísunarkenni kröfunnar þ.e. kröfunúmerið sett í
tilvísunardálkinn, þannig má athuga hvort krafan sé þegar bókuð sem kemur í veg fyrir tvíbókanir.
Stemmi dagbókin er óhætt að bóka hana.
Samstilla við banka
Þessi vinnsla sækir kröfur úr bankanum og stofnar í kröfuskránni í Uniconta. Notendur sem eru
nýbúnir að senda kröfur til bankans með eldra kröfukerfi og vilja byrja að nota nýja kröfukerfið til
að sýsla með greiðslur og kröfur þurfa að byrja á því að keyra þessa vinnslu.
Tilgreina þarf gjalddaga sem sækja á. Ef sækja á bara einn gjalddaga dugar að setja sömu
dagsetningu í bæði svæðin, en það má líka tilgreina heilan mánuð og sækir vinnslan þá kröfur
með þeim gjalddögum sem finnast í bankanum.
Sé ekki hakað við “Stofna einnig fyrir ófundna reikninga” þá tengir vinnslan kröfurnar sem finnast
í bankanum við reikningana í Uniconta svo hægt sé að jafna út greiðslur sjálfvirkt við bókun.
Hins vegar ef hakað er við “Stofna einnig fyrir ófundna reikninga” þá sækir vinnslan allar kröfur
sem finnast í bankanum, nema þær sem eru greiddar og jafna þarf út greiðslur handvirkt í
bankaafstemmingum eftir á.
Gangsetning á kröfukerfi – samstilling á útistandandi kröfum
Ef kröfur voru stofnaðar með textaskrá og bókaðar í gegnum textaskrá frá banka þarf að samstilla
útistandandi kröfur svo hægt sé að sækja greiðslurnar inn í nýja kröfukerfið.
Farið í Kröfuskrá og smellið á Samstilla við banka. Sækið 10-15 daga í hverju kalli eins langt aftur í
tímann og þurfa þykir. Kröfur sem eru með eindaga fyrir meira en 3 mánuðum fást ólíklega
greiddar þannig að gott er að miða við 2-3ja mánaða tímabil.
![]()
Þegar búið er að samstilla 2-3 mánuði aftur í tímann, farið í Sækja greiðslur og veljið að uppfæra
einnig ógreiddar kröfur.
![]()
Þessi aðgerð uppfærir greiðslustöðu á kröfunum. Þær kröfur sem eru greiddar er hægt að flytja
yfir á dagbók til bókunar. Smellið á Bóka greiðslur til að færa yfir í dagbók. Ef dagbókin inniheldur
greiðslur sem hafa þegar verið bókaðar, eyðið þeim færslum út áður en þær eru bókaðar.
Ef kröfur hafa stöðuna Felld þá er hægt að fara í Gagnastjórnun og velja IKClaims, sía á felldar
kröfur og eyða þeim út.
Að þessu loknu eru ógreiddar kröfur sem voru stofnaðar með textaskrá komnar inn í Kröfuskrá og
hægt er að bóka allar greiðslur þaðan í stað þess að sækja greiðsluskrá frá banka.
Aðgangsheimildir
Hér er listi með lágmarksaðgangsheimildum fyrir notanda sem þarf eingöngu að stofna
reikninga. Með þessum heimildum getur notandinn stofnað og breytt kröfum en hann getur ekki
fellt kröfur. Til að fella kröfur þarf hann full réttindi í aðgangshóp notendatöflu 1. Notandinn sem
er skráður eigandi fyrirtækisins hefur svo alltaf full réttindi.
![]()
Algengar spurningar
Sp: Ég keyrði út mánaðarreikningana hjá okkur í gær sem tókst og allt rétt nema þeir skiluðu sér
ekki inn í bankakerfið?
Sv: Eftir að reikningar eru keyrðir út þarf að velja “Innheimtukerfi” og nota aðgerðina “Smíða
kröfur” til að stofna innheimtukröfur sem eiga að sendast til banka.
Sp: Ég er búin(n) að setja restina af kröfum gærdagsins í kröfuskrána, á hvaða flipa á ég að ýta til
að senda þær áfram í bankann?
Sv: Velja skal aðgerðina “Nýjar” á tækjaslánni í kröfuskránni til að senda allar nýstofnaðar kröfur í
bankann.
Sp: Ég handbókaði allar kröfurnar og núna er allt í lagi nema dráttavextir bókast ekki á
dráttarvaxtalykilinn heldur beint á viðskiptamanninn?
Sv: Ef verið er að bóka í gegnum afstemmingu banka þá gerist þetta. Nota skal aðgerðina “Bóka
greiðslur” á tækjaslánni í kröfuskránni.
Sp: Ég smellti á “Sækja greiðslur” og núna kom 0 kröfur greiddar 120 ógreiddar en það eru
samkvæmt yfirlitinu frá bankanum 48 kröfur greiddar í síðustu viku?
Sv: Þetta getur gerst. Þegar krafa er greidd í banka þá getur greiðslan verið allt upp í sólarhring að
velkjast um bankakerfið. Ef fólk veit að það eru ósóttar greiðslur sem skila sér ekki inn þá má
alltaf smella aftur á “Sækja greiðslur”, til dæmis daginn eftir. Hjá Arion banka skila greiðslur sér
samdægurs en daginn eftir hjá hinum bönkunum.
Sp: Ég er alltaf að lenda í vandræðum með að sækja greiddar kröfur í kröfukerfinu það koma
alltaf 0 greiddar kröfur?
Sv: Þegar verið er að sækja greiðslur og þessi skjámynd birtist:
![]()
Þá skal smella á ‘Já’ því í einhverjum tilfellum gæti fjöldi greiðslna verið röng en með því að
smella á ‘Já’ eru allar greiðslurnar sóttar.
Sp: Það gerist ekkert þegar ég ætla að smíða kröfu?
Sv: Það þarf fyrst að smella á Leit á tækjaslánni til að sjá færslurnar sem smíða á kröfur út frá.
Sp: Hvers vegna myndast krafa út frá greiddum reikningi?
Sv: Kröfukerfið í Uniconta vinnur á opnum færslum viðskiptavina. Þegar reikningur er greiddur
jafnast hann út á móti greiðslunni og færslan lokast. Gerist þetta ekki getur myndast önnur krafa
í næstu kröfusmíði.