Áætlun sem afrit af rauntölum
Einnig er hægt að mynda áætlanir út frá rauntölum.
- Veldu Verk/Verk
- Veldu hnappinn Stofna áætlun (rauntölur) undir hnappnum Áætlun
Með þessum valmyndarlið eru allar raunfærslur verks á tilteknu tímabili færðar yfir á sama áætlunartímabil í sama verki árið eftir.
Færslan fer fram samkvæmt völdum skilyrðum.
Hægt er að mynda áætlun fyrir mörg verk í einu með því að velja þau.
Lýsing á reitunum
| Tímabil | |
| Frá dagsetningu og Til dagsetningar | Tilgreindu áætlunartímabil áætlunarinnar sem á að mynda. Í dæminu hér að ofan finnur afmörkunin allar verkfærslur á tímabilinu 01-01-2024 til 31-12-2024 og stofnar þær sem áætlunarfærslur á tímabilinu 01-01-2025 til 31-12-2025. |
| Stillingar | |
| Áætlunarflokkur | Skylt er að fylla út áætlunarflokkinn. |
| Áætlunaraðferð | Mánuður (byrjun) - Ein tala á hvern starfsmann, hverja tegund/taxtaflokk, hvern mánuð og hvert verk. Allar færslur eru settar á fyrsta dag mánaðarins.
Mánuður (lok) - Ein tala á hvern starfsmann, hverja tegund/taxtaflokk, hvern mánuð og hvert verk. Allar færslur eru settar á síðasta dag mánaðarins. Vika - Ein tala á hvern starfsmann, hverja tegund/taxtaflokk, hverja viku og hvert verk. Allar færslur eru settar á fyrsta dag mánaðarins. Dagur - Nákvæmt afrit, hliðrað með leiðréttingu fyrir tilfærslu vikudaga milli ára. Mánudagur verður mánudagur. O.s.frv. |
| Heiti | Heitið er sett í dálkinn „Heiti“ á öllum nýjum áætlunum. Ef reiturinn er skilinn eftir auður er sjálfgefið gildi (Áætlun) sett inn, þar sem skylt er að fylla reitinn út. |
| Eyða áætlunarfærslum sem fyrir eru | Ef áætlunarfærslur eru þegar til í þessum áætlunarflokki er ekkert afritað nema hakað sé í þennan reit. |
| Afmörkun | |
| Starfsmaður | Stofna áætlun fyrir tiltekinn starfsmann |
| Verktegund | Stofna áætlun fyrir tiltekna tegund |
| Taxtaflokkur | Stofna áætlun fyrir tiltekinn taxtaflokk |
| Vinnusvæði | Stofna áætlun sem sett er á tiltekið vinnusvæði |
| Með verkefnum verks | Ef verkefni eru á verkfærslunum er ekkert afritað í áætlunina nema hakað sé í þennan reit. |
| Verk | Stofna áætlun fyrir tiltekið verk. |
| Með verkefnum verks | Afritar verkefni yfir á áætlunarfærslurnar. |