Staðgreiðsluafsláttur er veittur þeim viðskiptavinum sem greiða reikninga sína innan tiltekins frests miðað við greiðsluskilmála sína.
Staðgreiðsluafslátt má setja upp fyrir viðskiptavini og lánardrottna. Hann er reiknaður við bókun innkaupa- og sölureikninga, en er ekki bókaður fyrr en greiðslan er bókuð, ef greiðslan berst innan frests staðgreiðsluafsláttarins.
Myndband um staðgreiðsluafslátt
Í þessu myndbandi sérðu nauðsynlega uppsetningu staðgreiðsluafsláttar og hvernig bókað er með staðgreiðsluafslætti (á dönsku):
Uppsetning og bókun með staðgreiðsluafslætti
Uppsetning staðgreiðsluafsláttar
Gera þarf nokkrar uppsetningar í Uniconta til að hægt sé að nota staðgreiðsluafslátt:
- Stofna þarf greiðsluskilmála með staðgreiðsluafslætti
- Tilgreina þarf á hvaða lykil staðgreiðsluafslátturinn er bókaður
- Tengja þarf greiðsluskilmálana með staðgreiðsluafslætti við viðskiptavini og/eða lánardrottna
- Tilgreindu e.t.v. fjölda eindagafrestsdaga vegna staðgreiðsluafsláttar
Uppsetning greiðsluskilmála með staðgreiðsluafslætti
Greiðsluskilmálar eru settir upp undir Fjárhagur/Viðhald/Greiðsluskilmálar.
Veldu hnappinn Bæta við til að stofna nýja greiðsluskilmála, eða veldu hnappinn Breyta til að bæta staðgreiðsluafslætti við fyrirliggjandi greiðsluskilmála.
![]()
Lýsing á reitum
Lýsing á reitum varðandi staðgreiðsluafslátt í greiðsluskilmálum
| Heiti reits | Lýsing |
| Lýsing | |
| Greiðsla | Greiðsluskilmálarnir þurfa að hafa heiti. |
| Heiti | Nánari lýsing á greiðsluskilmálunum. Oftast er það þessi texti sem birtist á reikningssniðum o.fl. T.d. Nettó 14 dagar eða 5 dagar - 2%, ef reikningurinn er á gjalddaga innan 14 daga en nýta má 2% staðgreiðsluafslátt ef greitt er innan 5 daga. |
| Sjálfgefið | Ef sjálfgefið er valið eru þessir greiðsluskilmálar notaðir á viðskiptavini og lánardrottna nema annað sé valið. |
| Greiðsluháttur | Veldu annan greiðslumáta en 'staðgreiðsla' til að birta reitina fyrir uppsetningu staðgreiðsluafsláttar. |
| Innheimtugjald | Hakaðu hér ef leggja á til innheimtugjald eftir t.d. 14 daga. |
| Dagar | |
| Dagafjöldi | Skrifaðu fjölda daga sem bætast við reikningsdagsetninguna við útreikning gjalddaga. Þ.e. í dæminu 'Nettó 14 dagar eða 5 dagar - 2%' væri skrifað 14 í þennan reit. |
| Lok mánaðar | Greiðsludagurinn verður síðasti dagur mánaðarins. |
| Hlutagreiðsla | |
| Staðgreiðsluafsláttur | |
| Staðgreiðsluafsláttur % | Sláðu inn prósentuna sem nýta má í staðgreiðsluafslátt. Þ.e. í dæminu 'Nettó 14 dagar eða 5 dagar - 2%' væri skrifað 2 í þennan reit. |
| Lok mánaðar staðgreiðsluafsláttur | Ef dagsetning staðgreiðsluafsláttar er t.d. líðandi mánuður + 15 dagar er hakað í þennan reit og jafnframt sleginn inn 15 í reitinn Staðgreiðsluafsláttur. Dagar, sem þýðir að nýta má staðgreiðsluafsláttinn til og með 15. mánaðarins eftir reikningsdagsetningu. |
| Staðgreiðsluafsláttur. Dagar | Sláðu inn hversu marga daga frá reikningsdagsetningu má nýta staðgreiðsluafsláttinn. Þ.e. í dæminu 'Nettó 14 dagar eða 5 dagar - 2%' væri skrifað 5 í þennan reit. |
| Staðgreiðsluafsláttur reiknast af | Veldu hvort staðgreiðsluafslátturinn reiknast af brúttó- eða nettóupphæð reikningsins, þ.e. af upphæð reikningsins með eða án VSK. |
| Bakfæra VSK af staðgreiðsluafslætti | Ef staðgreiðsluafslátturinn reiknast af upphæð reiknings með VSK er oftast hakað í þennan reit, þannig að VSK-upphæð sé sjálfkrafa bakfærð ef staðgreiðsluafslátturinn er nýttur við bókun greiðslunnar. |
Lýsingu á öllum reitum greiðsluskilmála má finna í þessari grein: Greiðsluskilmálar
Uppsetning lykils fyrir staðgreiðsluafslátt
Fjárhagsbókun staðgreiðsluafsláttar er skilgreind á viðskiptavina- og lánardrottnaflokkunum.
- Veldu Viðskiptavinur/Viðhald/Viðskiptavinaflokkar
- Veldu hnappinn Breyta
- Fylltu út reitinn Staðgreiðsluafsláttur með lyklinum sem veittur/nýttur staðgreiðsluafsláttur á að bókast á
- Endurtaktu ofangreint fyrir alla viðskiptavinaflokka
- Endurtaktu ofangreint fyrir lánardrottnaflokkana undir Lánardrottinn/Viðhald/Lánardrottnaflokkar.
![]()
Uppsetning á viðskiptavinum/lánardrottnum
Fyrir þá viðskiptavini sem mega nýta staðgreiðsluafslátt þarftu að velja greiðsluskilmála með uppsetningu staðgreiðsluafsláttar.
Veldu því Viðskiptavinur/Viðskiptavinur og hnappinn Breyta á þessum viðskiptavinum og fylltu út reitinn Greiðsla með greiðsluskilmálum með uppsetningu staðgreiðsluafsláttar.
Það sama gerir þú á lánardrottnum undir Lánardrottinn/Lánardrottinn.
Eindagafrestur
Ef þú vilt skilgreina að viðskiptavinir megi t.d. nýta staðgreiðsluafsláttinn þótt þeir greiði 2 dögum eftir dagsetningu staðgreiðsluafsláttar, þ.e. 2 dögum seinna en ætlast var til, getur þú slegið inn 2 í reitinn Eindagafrestur (Staðgreiðsluafsláttur) undir Viðskiptavinur/Viðhald/Númeraraðir.
Þegar þú bókar greiðsluna frá viðskiptavininum í bókunardagbók bókar kerfið staðgreiðsluafsláttinn sjálfkrafa ef greiðsludagurinn er fyrir eða sami og dagsetning staðgreiðsluafsláttar + fjöldi eindagafrestsdaga.
Bóka innkaupa- og/eða sölureikninga
Bókaðu síðan innkaupa- og/eða sölureikninga.
Á hverri sölupöntun, flýtireikningi, innkaupapöntun og innkaupareikningi er hægt að velja aðra greiðsluskilmála en þá sem valdir eru á viðskiptavininum/lánardrottninum.
Ef aðrir greiðsluskilmálar eru valdir ganga þeir framar valinu á viðskiptavininum/lánardrottninum.
Á innkaupapöntunum og innkaupareikningum er einnig hægt að slá handvirkt inn dagsetningu og upphæð staðgreiðsluafsláttar.
Þessir tveir reitir ganga framar uppsetningu greiðsluskilmálanna sem valdir eru á lánardrottninum.
Sjá reiknaðan staðgreiðsluafslátt
Þegar innkaupa- og/eða sölureikningar eru bókaðir má síðan sjá reiknaða upphæð og dagsetningu staðgreiðsluafsláttar á opnum færslum viðskiptavina og/eða lánardrottna.
ATH! Ef staðgreiðsluafslátturinn reiknast af upphæð með VSK má sjá VSK-upphæð staðgreiðsluafsláttarins í reit sem heitir VSK upphæð (Staðgreiðsluafsláttur) á opnu færslunum. Lestu meira um meðhöndlun VSK af staðgreiðsluafslætti neðst í þessari grein.
Greiðslukerfi lánardrottna
Þegar þú greiðir lánardrottnum þínum í gegnum greiðsluaðgerð lánardrottna undir Lánardrottinn/Skýrslur/Greiðslukerfi, skaltu hafa í huga eftirfarandi reiti varðandi staðgreiðsluafslátt.
| Heiti reits | Lýsing |
| Dags. staðgreiðsluafsláttar | Reikningar sem greiddir eru fyrir þessa dagsetningu veita staðgreiðsluafslátt. |
| Staðgreiðsluafsláttur | Upphæð staðgreiðsluafsláttar sem verður nýtt, þ.e. dregin frá upphæð reikningsins. |
| Nýttur staðgreiðsluafsláttur | Ef skilyrði staðgreiðsluafsláttar eru uppfyllt, þ.e. dagsetning staðgreiðsluafsláttar >= dagsetning dagsins, er upphæð staðgreiðsluafsláttarins sett sjálfkrafa í þennan dálk. |
| Upphæð greiðslu | Upphæð reiknings mínus nýttur staðgreiðsluafsláttur |
Lestu meira um greiðsluaðgerð lánardrottna hér.
Greiðsla viðskiptavinar með staðgreiðsluafslætti
Þegar þú slærð inn innborgun frá viðskiptavini í bókunardagbók og jafnar á móti opnum reikningi, t.d. með F8 í bókunardagbókinni, verður upphæðin sem færist í dagbókina sjálfkrafa upphæð reiknings mínus upphæð staðgreiðsluafsláttar, ef dagsetning línunnar í dagbókinni er <= dagsetning staðgreiðsluafsláttar á opnu viðskiptavinafærslunni sem jafnað er á móti.
Ef fjöldi daga hefur verið sleginn inn í reitinn Eindagafrestur (Staðgreiðsluafsláttur) undir Viðskiptavinur/Viðhald/Númeraraðir, er staðgreiðsluafslátturinn dreginn frá ef dagsetning línunnar í dagbókinni er <= dagsetning staðgreiðsluafsláttar + eindagafrestur.
ATH! Ef bókuð er greiðsla þar sem jafnaðir eru margir reikningar og kreditreikningar í einu myndast margar greiðslufærslur á viðskiptavininum, svo sjá má hvaða reikningar/kreditreikningar hafa verið greiddir/jafnaðir í greiðslunni og með hvaða staðgreiðsluafslætti.
Staðgreiðsluafslátturinn er einnig dreginn frá sjálfkrafa þegar reikningsnúmer er slegið inn í reitinn Reikningur í bókunardagbókinni, en AÐEINS ef þú hefur ekki fyllt út lykilreitinn fyrst.
Þ.e. best er að slá aðeins inn reikningsnúmerið og láta Uniconta sjálfkrafa fylla út lykilreitinn með lykilnúmeri viðskiptavinarins, upphæð o.s.frv. í dagbókinni.
Dæmi
Ef þú hefur t.d. bókað reikning á viðskiptavin upp á 6.250 kr. með staðgreiðsluafslætti upp á 100 kr. og dagsetningu staðgreiðsluafsláttar = 25/1 2022, færir kerfið sjálfkrafa 6.250 kr. í bókunardagbókina við jöfnunina ef dagsetning línunnar í dagbókinni er 26/1 22 eða síðar.
Ef dagsetning línunnar í dagbókinni er 25/1 22 eða fyrr færir kerfið aðeins 6.150 kr. í bókunardagbókina, því 100 kr. staðgreiðsluafslátturinn er dreginn frá sjálfkrafa. Ef þú hermir bókunina í dagbókinni sérðu að það eru enn 6.250 kr. sem bókast sem greiðsla á viðskiptavininn, en aðeins 6.150 kr. bókast á bankann og 100 kr. bókast á lykil staðgreiðsluafsláttar sem skilgreindur er á viðskiptavinaflokknum.
Breyting á nýtingu staðgreiðsluafsláttar
Viðskiptavinurinn nýtir ekki staðgreiðsluafsláttinn
Ef viðskiptavinurinn hefur ekki nýtt staðgreiðsluafsláttinn þótt hann hafi greitt fyrir dagsetningu staðgreiðsluafsláttar getur þú einfaldlega leiðrétt upphæðina handvirkt í bókunardagbókinni. Þ.e. í dæminu hér að ofan, þar sem kerfið hefði þá fært 6.150 kr. í dagbókina við jöfnunina, er upphæðin einfaldlega leiðrétt handvirkt í 6.250 kr. og þá er enginn staðgreiðsluafsláttur bókaður.
Viðskiptavinurinn nýtir staðgreiðsluafsláttinn þótt greiðslan berist eftir dagsetningu staðgreiðsluafsláttar
Ef viðskiptavinurinn hefur nýtt staðgreiðsluafsláttinn þótt hann greiði ekki fyrr en eftir dagsetningu staðgreiðsluafsláttar, og þú vilt bóka nýtingu staðgreiðsluafsláttarins, má nota aðra hvora af eftirfarandi 2 aðferðum:
- Í jöfnunarglugganum sem þú hefur opnað t.d. með F8 úr bókunardagbókinni velur þú hnappinn Breyta og leiðréttir dagsetningu staðgreiðsluafsláttar þannig að dagsetningin sem viðskiptavinurinn greiddi á sé <= dagsetning staðgreiðsluafsláttar. Síðan jafnar þú færsluna. Kerfið færir þá sjálfkrafa upphæð reiknings mínus upphæð staðgreiðsluafsláttar í dagbókina.
- Í bókunardagbókinni þarftu að bæta við reitnum Nýttur staðgreiðsluafsláttur, ef þú ert ekki þegar með þann reit.
Þegar þú jafnar reikninginn færir kerfið sjálfkrafa alla upphæð reikningsins í dagbókina, þ.e. í þessu dæmi 6.250 kr.
Þú leiðréttir þá upphæðina í dagbókinni handvirkt í 6.150 kr. og fyllir jafnframt út reitinn Nýttur staðgreiðsluafsláttur með upphæð staðgreiðsluafsláttarins, þ.e. í þessu dæmi 100.
Viðskiptavinurinn nýtir aðra upphæð staðgreiðsluafsláttar
Ef viðskiptavinurinn hefur dregið frá aðra upphæð staðgreiðsluafsláttar en þá sem reiknuð er á reikningnum má nota aðra hvora af eftirfarandi 2 aðferðum:
- Í jöfnunarglugganum sem þú hefur opnað t.d. með F8 úr bókunardagbókinni velur þú hnappinn Breyta og leiðréttir upphæð staðgreiðsluafsláttar þannig að hún samsvari afslættinum sem viðskiptavinurinn hefur dregið frá. Síðan jafnar þú færsluna. Kerfið færir þá sjálfkrafa upphæð reiknings mínus upphæð staðgreiðsluafsláttar í dagbókina.
- Í bókunardagbókinni þarftu að bæta við reitnum Nýttur staðgreiðsluafsláttur, ef þú ert ekki þegar með þann reit.
Þegar þú jafnar reikninginn færir kerfið sjálfkrafa upphæð í dagbókina, t.d. 6.150 kr. ef greitt er innan dagsetningar staðgreiðsluafsláttar. En ef viðskiptavinurinn hefur nýtt 150 kr. í staðgreiðsluafslátt í stað 100 kr. eins og búist var við getur þú leiðrétt upphæðina í dagbókinni handvirkt í 6.100 kr. og fyllt jafnframt út reitinn Nýttur staðgreiðsluafsláttur með upphæð staðgreiðsluafsláttarins, þ.e. í þessu dæmi 150.
Greiðsla bókuð án jöfnunar
Ef innborgun hefur verið bókuð án jöfnunar stendur eftirstöðvarupphæð staðgreiðsluafsláttarins á viðskiptavinalyklinum og opnar færslur eru bæði á reikningnum og innborguninni.
Til að núllstilla mismuninn á innborgun og reikningi þarf að bóka staðgreiðsluafsláttinn út handvirkt. Það er yfirleitt gert á innborgunardegi.
Ef innborgunardagurinn er innan skilyrða staðgreiðsluafsláttarins þarf að fjarlægja dagsetningu staðgreiðsluafsláttar. Annars er staðgreiðsluafslátturinn sjálfkrafa notaður í bókunardagbókinni og enginn mismunur verður á reikningi og innborgun.
Til að hreinsa upp þarf að gera eftirfarandi:
- Dagsetning staðgreiðsluafsláttar er fjarlægð. Það er gert undir opnum færslum (Breyta).
- Í bókunardagbókinni þarftu að bæta við reitnum Bókunartegund, ef þú ert ekki þegar með þann reit.
Þegar þú jafnar reikninginn með F8 færir kerfið sjálfkrafa upphæð í dagbókina. Breyttu Bókunartegund í Afsláttur og notaðu fjárhagslykil staðgreiðsluafsláttar viðskiptavina sem mótlykil.
VSK af staðgreiðsluafslætti
Samkvæmt dönsku skattyfirvöldunum (Skat) þurfa fyrirtæki sem bjóða viðskiptavinum sínum staðgreiðsluafslátt af upphæð reiknings með VSK að gefa út kreditreikning til viðskiptavinarins ef staðgreiðsluafslátturinn er nýttur.
Því miður gera það ekki öll fyrirtæki, en Skat hefur áréttað að kaupandi þurfi samt að bakfæra VSK af staðgreiðsluafslættinum.
Ef þú vilt að Uniconta sjái um þetta sjálfkrafa þarftu að gera eftirfarandi:
- Stofnaðu greiðsluskilmála með staðgreiðsluafslætti undir Fjárhagur/Viðhald/Greiðsluskilmálar.
Staðgreiðsluafsláttur reiknast af þarf að vera 'Brúttóupphæð' og veldu að VSK af staðgreiðsluafslættinum skuli bakfærður, eins og sýnt er í dæminu hér fyrir neðan:
- Bókaðu nú innkaupareikningana með þessum greiðsluskilmálum.
Reiknuð upphæð staðgreiðsluafsláttar er af upphæðinni með VSK og má sjá hana á opnum lánardrottnafærslum.
T.d. fær innkaupareikningur upp á 1.000 kr. með VSK reiknaðan staðgreiðsluafslátt upp á 20 kr.
VSK á reikningnum er 200 kr.
ATH! Afslátturinn er ekki bókaður samtímis bókun innkaupareikningsins, því afslátturinn er ekki bókaður fyrr en hann er nýttur.
Oftast fást slíkir skilyrtir afslættir aðeins ef reikningurinn er greiddur fyrir venjulegan greiðslufrest, þ.e. staðgreiðsluafslátturinn er ekki bókaður fyrr en greiðslan er bókuð. - Bókaðu greiðslu innkaupareikningsins og jafnaðu reikninginn í leiðinni.
Kerfið leggur sjálfkrafa til að greidd sé upphæð reiknings án staðgreiðsluafsláttar ef reikningurinn er greiddur innan frestsins til að nýta afsláttinn.
Við bókun greiðslunnar bókar kerfið sjálfkrafa staðgreiðsluafsláttinn og bakfærir VSK af honum eins og sýnt er í dæminu hér fyrir neðan.
ATH! VSK af afslættinum er aðeins bókaður við greiðsluna ef það hefur verið valið á sjálfum greiðsluskilmálunum áður en innkaupareikningurinn var bókaður.