Endurpöntunarlisti
Hvert birgðaspjald í Birgðir/Vörur gefur notandanum kost á að setja upp hámarks-og lágmarksbirgðastig fyrir hverja vöru. Einnig er hægt að stilla innkaupamagn til að slétta upp að næsta innkaupalegu magni hér.
![]()
Endurpöntunarlistinn er síðan stofnaður sjálfkrafa til að leggja til hvaða innkaupa er krafist, miðað við birgðastöðu. Til að stofna endurpöntunarlista skal fara í Birgðir/Skýrslur/Endurpöntunarlisti.
![]()
ATH! 'Afhendingardagur: Frá dagsetningu' þarf að vera dagurinn í dag eða dagsetning fram í tímann. Ekki er hægt að velja dagsetningar aftur í tímann. 'Til dagsetning' þarf alltaf að vera síðar en 'Frá dagsetning'.
ATH! Ef 'Frá dagsetning' er fram í tímann ætti hún alltaf að vera langt fram í tímann, því dagsetning skammt fram í tímann getur misst af gögnum úr pöntunum með afhendingardag rétt fyrir 'Frá dagsetninguna'. Það getur leitt til tvöfaldra pantana. Til að vera viss um að það gerist ekki ætti 'Frá dagsetning' alltaf að vera dagurinn í dag.
ATH! Listinn er myndaður út frá færslum sem verið hafa í birgðum. Vörur sem engin hreyfing hefur verið á birtast ekki. Þeim má bæta við með 'Bæta við vöru' eða með því að afrita vörurnar inn og fylla út pöntunarmagn.
Endurpöntunarlistinn er "reiknaður" upp reglulega og varar notandann við ef þarf að endurpanta vörur. Það tekur tillit til allra vara sem eru innifaldar í gildandi innkaupapöntunum sem og þær sem eru fráteknar til sölu.
Auðveldlega er hægt að breyta endurpöntunarlistanum, til dæmis línum er hægt að eyða og breyta magni.
Svo er hægt að stofna tillögu að innkaupapöntun fyrir hvern lánardrottin.
Innkaupapantanir fletta upp verðsamningum við lánardrottna sem skráðir eru í Uniconta og bæta sjálfkrafa umsamið verð við innkaupapöntunina. Þessar endurpantanir er hægt að gera alveg niður í einstök afbrigði ef krafist er.
Uppsetning endurpöntunarlista
- Tekur tillit til lágmarks- og hámarksbirgða
- Tekur tillit til pantaðs magns í innkaupapöntunum og frátekins magns í sölupöntunum (afhendingardagur á pöntunarlínu (1.)/haus sölupöntunar (2.)).
- Tekur tillit til magns í vöruhúsum og á staðsetningum.
- Endurpöntunarlistinn notar einnig lánardrottininn sem valinn er á vöruspjaldinu. Veldu sjálfgefinn lánardrottin fyrir vöruna og hann verður valinn sem lánardrottinn vörunnar við endurpöntun.
ATH: Ef aðeins á að panta valdar vörur má setja síu svo aðeins viðkomandi vörur sjáist, velja lánardrottin og staðsetningu fyrir þær og stofna síðan innkaupapöntun með því að smella á Stofna innkaupapantanir á borðanum.
ATH: Ef innkaupalyklar hafa verið stofnaðir á vörunni má sjá lánardrottnana í fellilistanum í dálkinum 'Lánardrottinn birgða'.
ATH: Ef vöruhús og staðsetningar eru notuð má panta inn á þau með því að haka í Per vöruhús og Per staðsetning. Í birgðum vörunnar þarf að setja lágmarks- og hámarksmagn, annars er það tekið beint af vöruspjaldinu. Ef lágmarksbirgðir eru t.d. 100 verða lágmarksbirgðir allra vöruhúsa þá 100.
Lýsing á hnöppum á tækjaslánni
Hér fyrir neðan er lýsing á hnöppunum á tækjaslánni undir Birgðir/Skýrslur/Endurpöntunarlisti
![]()
| Hnappur | Lýsing |
| Bæta við vöru | Smelltu hér til að bæta við vöru |
| Eyða færslu | Smelltu hér til að fjarlægja færslu. (Vörunni er ekki eytt, hún er bara fjarlægð úr yfirlitinu) |
| Sía/Hreinsa síu | Lestu meira hér. |
| Per vöruhús og Per staðsetning | Hér má ákveða hvort mynda eigi innkaupatillögu fyrir hvert vöruhús og hverja staðsetningu. Það getur verið gagnlegt að hafa fleiri pantanir fyrir sömu vöru ef vöruhúsin eru langt hvert frá öðru. Settu e.t.v. lágmarks- og hámarksbirgðir á birgðir vörunnar til að ákvarða stærð birgða í vöruhúsi og á staðsetningu. |
| Snið | Lestu meira hér. |
| Færslur | Smelltu hér til að sjá færslur á vörunni. |
| Pantanalínur | Smelltu hér til að sjá pöntunarlínurnar. |
| Innkaupalínur | Smelltu hér til að sjá innkaupalínurnar. |
| Framleiðslulínur og Framleiðslupantanir | Í endurpöntunarlistanum er hægt að stökkva í framleiðslulínur til að sjá þörf og í framleiðslupantanir til að sjá hvað er í pöntun. |
| Þarfayfirlit | Sýnir þörfina fyrir hverja vöru. Lestu meira hér... |
| Niðurbrot uppskriftar | Brýtur niður uppskriftir svo hægt sé að sjá hversu margar undirvörur þarf að panta fyrir uppskrift. |
| Stofna innkaupapantanir | Innkaupapöntunina má stofna með þessari aðgerð. |
| Stofna framleiðslupöntun | Þegar framleiðslupöntun er valin í listanum er hægt að fara beint í framleiðslukerfið og stofna framleiðslu. |
| Bóka tilbúið | Framleiðsluuppskriftir má bóka tilbúnar úr endurpöntunarlistanum í gegnum birgðadagbókina. Þegar smellt er á Bóka tilbúið eru framleiðsluuppskriftirnar sem birtast settar í valda dagbók og síðan má opna dagbókina og bóka uppskriftirnar tilbúnar. |
| Senda úr vöruhúsi | Í endurpöntunarlistanum er hægt að sameina pantanir á sömu vöru en á mismunandi vöruhúsum. Einnig má, í stað þess að kaupa inn, flytja vöru úr einu vöruhúsi í annað. |
| Allir reitir | Sýnir alla reiti sem hægt er að birta í yfirlitinu. |
Flutningur vara í gegnum endurpöntunarlistann
Þegar smellt er á Senda úr vöruhúsi á tækjaslánni birtist eftirfarandi gluggi. Hér er valið hvaða dagbók á að nota fyrir flutninginn og úr hvaða vöruhúsi/staðsetningu varan á að flytjast. Í sjálfri dagbókinni þarf að fylla út vöruhúsið/staðsetninguna sem varan á að flytjast í.
![]()
ATH! Það eru vörurnar sem birtast sem settar eru í valda dagbók. Ef aðeins á að flytja sumar vörurnar þarf að setja síu.
Uppskriftir í endurpöntunarlistanum
Ef vörustjórnun er notuð og Birgðastýring er stillt á 'Frátekið' má nota Endurpöntunarlistann til að sjá magn undirvara í uppskriftum sem ætti að panta. Lestu meira um Birgðastýringu í Valkostir hér...
Hægt er að brjóta niður framleiðsluuppskriftir og uppskriftir í endurpöntunarlistanum.
Hér sést endurpöntunarlistinn fyrir og eftir að smellt er á Brjóta niður uppskrift
ATH! Aðeins vörur sem vantar í birgðir birtast í endurpöntunarlistanum.
Áður en Brjóta niður uppskrift er valið
Eftir að Brjóta niður uppskrift er valið
Myndband - endurpöntunarlisti
Í myndbandinu (á dönsku) sérðu hvernig endurpöntunarlistinn er notaður.
https://www.uniconta.com/da/video/logistik/genbestillingslisten/