Þetta valmyndaratriði er notað fyrir eins konar áfangareikninga (fyrirframreikninga) á verki.
Hins vegar er mælt með því að nota valmyndaratriðið Stofna reikningstillögu í staðinn, þar sem aðgerðin fyrir áfangareikninga hefur ekki verið uppfærð í nýjustu aðgerðunum í verkeiningunni.
Valmyndaratriðið er hægt að fela með því að fjarlægja hakið í reitnum Notkun 'Áfangareikningur' undir Fyrirtæki/Viðhald/Valkostir. Lestu meira hér.
ATH: Ekki á að nota með kerfiseiningunni Sölupöntun eða Reikningstillaga. Þ.e.a.s. aðgerðir verkyfirlitsins. Sölupöntun, Stofna reikningstillögu og Stofna núllreikning, sem og í Verklista. Stofna Áfangareikningstillögu, Stofna reikningstillögu og Stofna núllreikning.
Í þessu verki er búið að gera áfangareikning fyrir 30% af samþykktri upphæð. Í sömu línu er slegið inn hve mikið á að reikningsfæra nú. Það er gert með því að leggja saman það sem á að reikningsfæra ofan á það sem hefur þegar verið reikningsfært. Þ.e. að nú eigi að reikningsfæra 20% þá á að leggja 20% ofan á þau 30% sem hafa þegar verið reikningsfærð. Þ.e. það á nú að standa 50% í Lokið.
Mælt er með því að sérstakar tegundir séu gerðar í Reikningsfærslu áfangareikninga.
Lestu meira um uppsetningu Áfangareikninga hér.
![]()
Þegar reikningur er stofnaður skal fylla út 'Tegund'.
![]()
Eftirfarandi reikningsdæmi sýnir niðurstöðu 20% reikningsfærslu til viðbótar sem yrði því 50% samtals.
![]()
Í verkfærslur er hægt að sjá útkomuna af Reikningsfærslu áfangareikninga. Það sést að Áfangareikningur sé reikningshæfur þar sem hann verður að mótbóka gegn lokareikningi.
![]()
Lestu meira um færslur hér.
Villuboð er varðar áfangareikninga
Villuboð vegna áfangareikninga verks „Færslan er ekki til“
![]()
Ef upp kemur villulýsinguna „Villa: Færslan er ekki til“ og „Reiturinn má ekki vera auður (PrCategory)“ er það vegna þess að það þarf að velja Tegund á skjámynd „Stofna reikning“.
![]()