Innlestur á bankahreyfingum beint inn í Uniconta í gegnum bankatengingu
Hvernig á að stofna bankareikning í afstemmingu banka og setja upp skráarsnið til að kalla á hreyfingalista beint úr banka.
1. Fyrst þarf að fara í „Bókhaldslykill“ og skoða bankalyklana. Hér sést að Framkvæmdasjóður er skilgreindur sem „Veltufjármunir“ í gerð lykils. Til þess að bankalykill komi upp í afstemmingu banka þarf að breyta honum í gerðina „Banki.
Smellt á „Breyta“ í tækjaslá og „gerð lykils“ breytt í „Banki.
2.Farið er í „Afstemming banka“ og þar smellt á „bæta við bankareikningur“ í tækjaslá
Þar er valinn bankalykilinn og núna sést að „Framkvæmdasjóður“ hefur birst í listanum því búið er að breyta gerðinni í „Banki“, annars hefði hann ekki birst.
Svo er gefið „heiti“, sett dagbók sem „banki“ og sett inn bankareikningsnúmer neðst
Smellt svo á „Vista“
3. Skráarsnið banka - Hér sést svo yfirlit bankareikninga þegar búið er að stofna þá alla, því næst er smellt á „Sækja gögn“ í tækjaslánni
Þá birtist þessi mynd og smella þarf á „bæta við skrársnið banka“ í tækjaslánni
Hér er skrársniðið sett upp, gefið því bara nafnið eftir banka, í þessu tilviki „ISB“ fyrir Íslandsbanki og svo velja sjálft sniðið og velja þá ISLANDSBANKI þar sem þetta er reikningur úr Íslandbanka. Ekkert meira þarf að fylla út.
Smella á „Vista“
4. Sækja gögn úr bankanum beint í afstemmingu banka
Þegar búið er að setja upp skrársniðið, þá er smellt aftur á „Sækja gögn“, þá birtist þessi mynd
Sett er inn dagsetningabilið og svo innskráningarupplýsingar, næst er smellt á „Flytja inn“.
Þá ætti að koma „Villa“ sem þýðir að reynt hefur verið að kalla á gögn en bankinn þarf að opna fyrir þennan möguleika sín megin. Þetta þarf fyrir ISB og Arion en ekki Landsbankann.
Þannig fyrir Íslandsbanka og Arion banka þarf að senda tölvupóst á fyrirtækjaþjónustu bankans og segjast hafa verið að gera kall úr Uniconta fyrir ákveðið fyrirtæki og biðja þá um að opna tenginguna á milli. Fljótlega mun berast svar frá bankanum að opnað hefur verið fyrir tenginguna þá þarf að byrja aftur frá skrefi 4.