Segðir (expressions) í Report Generator
Skýrslugerð í Uniconta hefur nú verið einfölduð. Gögn eru nú tengd við stýringar skýrslunnar með segðum (expressions). Það þýðir að í stað gagnatenginga (data bindings), eins og í fyrri útgáfu, nota skýrslur nú segðir sjálfgefið.
Áður þurftu notendur að breyta skriftum (script) til að útfæra eigin rökfræði í skýrslum. Það hafði áhrif á öryggi og krafðist þess að notendur þekktu C#-forritun. Expression binding nær nú yfir flestar skriftur og auðveldar útreikning samtalna og sniðs út frá skilyrðum. Þannig geta notendur notað segðir í stað þess að skrifa kóða.
Hvernig eru segðir notaðar í Report Generator?
Það eru tvær leiðir til að skrifa segðir í Expression Editor.
Fyrri leiðin er að velja titilinn (label) og smella á litlu örina, eins og sýnt er á skjámyndinni hér fyrir neðan. Þá opnast gluggi með eiginleikum valins titils. Veldu annaðhvort eiginleikann úr fellilistanum eða smelltu á táknið '... ' eins og sýnt er á skjámyndinni hér fyrir neðan, til að opna Expression Editor-gluggann.
Seinni leiðin til að skrifa segð er að velja titilinn og smella á ’Expression’-táknið, sem er hringað í ’properties’-glugganum hér fyrir neðan.
Notandinn getur nú valið eiginleika (properties) segðarinnar, eins og sýnt er á skjámyndinni.
Eiginleikalínan 'Text' sýnir [Text] sem segðina. Valinn titill inniheldur nú gildið úr 'Text Property Object (InvTransLines)', t.d. fyrir reikning. Sjá skjámynd.
Hér getur notandinn breytt útliti og sniði titilsins o.fl.
Expression Editor-gluggann má opna með því að velja Text og smella á hnappinn '... ', eins og sýnt er á skjámyndinni hér að ofan.
'Expression Editor' opnast nú, eins og sýnt er á skjámyndinni hér fyrir neðan.
Hér getur notandinn valið tiltæka reiti ('Fields') með því að tvísmella á þá. Valinn reitur bætist þá við segðina í efri glugganum.
Notandinn getur gert útreikninga á reitnum með aðgerðunum sem valdar eru neðst vinstra megin á skjánum.
Notandinn getur einnig bætt við skýrsluþáttum og breytum sem eru tiltækar í skýrslunni.
Expression Editor má einnig nota til að tilgreina flókna segð fyrir tvo eða fleiri gagnareiti, eins og sýnt er á skjámyndinni hér fyrir neðan.
Eins og sést í Expression Editor hér fyrir neðan birtist nýr samtöluflokkur undir 'Functions/Summary’, þar sem öll 'sum'-forskeyti eru talin upp. Því er bætt við til að auðvelda aðgreiningu safnaðgerða frá samtöluaðgerðum skýrslunnar.
Allar þessar segðir virka sjálfgefið fyrir ' Before-print events’.
Skýrslum sem innihalda staðlaðar eða eldri tengingar (bindings) má breyta í skýrslu með expression binding, en ekki öfugt.