Það er mögulegt að nota sjálfvirka úthlutun númeraraða á eftirfarandi sviðum:
- Viðskiptavinur
- Lánardrottnar
- Birgðir
- Verk
Uppsetning “Sjálfvirkrar úthlutunar”
Sjálfvirk úthlutun er sett upp undir númeraraðir í Fjárhagur/Viðhald/Númeraraðir.

Smella skal á Bæta við eða F2 til að bæta við fylgiskjalanúmeri.

Fylla skal út eftirfarandi atriði í skjámyndinni hér að ofan:
- Sería
- Stutt nafn sem gefið er númeraröð fylgiskjalsins, svo sem: ViðNR
- Heiti
- Lengra og meira lýsandi heiti, svo sem: viðskm. nr.
- Notkun
- Hér er valið “Búa til Lykil”, þannig að númerið er sjálfkrafa úthlutað t.d. á viðskiptavin.

- Fyrsta númer
- Hér er slegið inn fyrsta númerið sem á að byrja á.
- Það getur t.d. verið 1 eða 100000.
- Síðasta númer
- Hér er fært inn síðasta númerið í númeraröðinni sem verið er að telja. Það er hægt að breyta því seinna ef númeraröðin er lokið.
- Til dæmis gæti það verið 9999999
- Næsta númer
- Hér er slegið inn númerið sem er næst í röðinni. Í þessum reit er einnig hægt að sjá hversu langt er komið í röðinni.
- Ef lyklar hafa verið innfluttir, eða hafa verið keyrðir inn með handvirkri úthlutun, og nú á að skipta yfir í sjálfvirkni, er hægt að slá inn næsta númer í röðinni og kerfið mun telja þaðan.
- Forskeyti
- Hér er hægt að setja inn forskeyti fyrir númerið. Þetta þýðir að númerinu er úthlutað fortexta.
- Það getur t.d. verið: ViðNr_
- Þetta númer er svo hægt að sjá í reitnum “Fylgiskjal”, á línunni fyrir t.d. Viðskiptavin.
- Lengd
- Er föst skilgreind lengd á númeri. Ef t.d. slegið er inn 13, mun viðskiptavinanúmer líta svona út: 00000001000000
- Lokað
- Ef ekki á að nota þessa númeraröð lengur er hakað í reitinn “Lokað” og þá er ekki hægt að nota hana meira.
Sjálfvirk úthlutun númera
Sjálfvirk úthlutun númera er gerð á flokknum.
Hér að neðan er úthlutunin á Viðskiptavin.
Valið er Viðskiptavinur/Viðhald/Viðskiptavinaflokkar.

Veldu viðskiptavinaflokk og svo smella á 'Breyta' í tækjaslánni.

Undir reitnum "Sjálfmyndaður lykill", er fylgiskjalsnúmeraröðin valin sem var búin til. Þetta er "Viðnr" í dæminu hér að ofan.
Þetta er sama aðferðin undir Lánardrottinn, Birgðir og Verk.
Velja skal tengda flokka og síðan úthluta stofnaðri fylgiskjalanúmeraröð.
|