Framleiðslupantanir má stofna og bóka tilbúnar undir Birgðir/Framleiðsla/Framleiðslupantanir.
Tilgangur framleiðslupantana er að geta skipulagt framleiðslu og bókað hana tilbúna á meðan framleitt er.
ATH! Valmyndaratriði framleiðslu sjást ekki nema kerfiseiningin Framleiðsla sé virk undir Fyrirtæki/Viðhald/Val kerfiseininga. Lestu meira um það hér.
Í framleiðslupöntunarkerfinu er hægt að stýra því hvernig fullunna varan er sett á lager. Vöruna má setja „í framleiðslu“ og „á lager“ áður en hún er bókuð tilbúin. Hægt er að færa magn á lager jafnóðum og einnig stýra vöruhúsi. Allar sömu aðgerðir og þekkjast fyrir vörur sem pantaðar eru í innkaupakerfinu.
Lýsing á reitum framleiðslu
Framleiðslu er skipt í mismunandi hluta, t.d. Vara, Birgðir, Pöntun o.fl.
| Heiti reits | Lýsing |
| Vörunúmer/heiti | |
| Stofnað | |
| Afbrigðisgerð | |
| Magn | |
| Birgðastýring | |
| Tilvísun | Textareitur sem birtist á vörunum sem bókaðar eru tilbúnar. |
| Lotunúmer | |
| Gildislokadagsetning | |
| Fært á birgðir | |
| Vöruhús | |
| Staðsetning | |
| Dagsetning tilbúið | |
| Flokkur | |
| Framleiðslunúmer | |
| Afhendingardagur | |
| Afhendingardags. staðfest | |
| Stofnað | |
| Færslutexti | |
| Lykill | |
| Heiti lykils | |
| Starfsmaður | |
| Tilv. yðar | |
| Innkaupabeiðni | |
| Tilv. okkar | |
| Sölupöntun | |
| Athugasemd | |
| Deild | |
| Tilgangur | |
| Verk | |
| Tegund | |
| Vinnusvæði |
Lýsing á reitum framleiðslulína
| Heiti reits | Lýsing |
| Minnispunktur | |
| Vörunúmer | |
| Afbrigði 1 - 5 | |
| Texti | |
| Magn | |
| Lotu-/Raðnr | |
| EAN-númer | |
| Verð | |
| Samtala | |
| Söluvirði | |
| Kostnaðarvirði | |
| Notað | |
| Nota núna | |
| Kostnaðarverð | |
| Vöruhús | |
| Staðsetning | |
| Birgðastýring | |
| Bóka tilbúið | |
| Öll stig | |
| Sleppa Lokað | |
| Útiloka | Útgáfa-95 Ef hakað er í 'Útiloka' eru þær línur ekki teknar með í sjálfri framleiðslunni. Það gildir bæði um kostnaðarvirði og birgðafærslur. |
| Eining | |
| Vika | |
| Dagsetning | |
| Tilvísun | |
| Fjárhagslykill fyrir birgðaúttekt | |
| Færslutexti | |
| Lotu-/Raðnúmer er valið | |
| Starfsmaður | |
| Eftirstöðvar | |
| Línunúmer | |
| Raðarnúmer | |
| Síðast uppfært | |
| Afhendingardagur | |
| Vídd 1 - 5 |
Stofna framleiðslu
- Til að stofna framleiðslu er valinn hnappurinn Bæta við á tækjaslánni.
- Veldu vöruna sem á að framleiða af vörunúmeralistanum í reitnum Vörunúmer.
ATH! Þetta þarf að vera vörunúmer af gerðinni Framleiðsluuppskrift.
- Fylltu út hversu mikið magn af vörunni á að framleiða í reitnum Magn
- Í reitnum Birgðastýring er valið hvort varan á að skrást t.d. sem pöntuð í birgðakerfinu.
- Framleiðslunúmeri er úthlutað sjálfkrafa úr númeraröðinni sem fyllt er út undir Viðskiptavinur/Viðhald/Númeraraðir, en það má einnig fylla út handvirkt í reitnum Framleiðslunúmer.
- Afhendingardagur er sleginn inn í reitinn Afhendingardagur.
Ef undir Fyrirtæki/Valkostir hefur verið valið „Uppfæra afhendingardagur“ er afhendingardagur reiknaður út frá afhendingartíma undir „Birgðastig“. Lestu meira hér.
Ef „Uppfæra afhendingardagur“ er ekki valið er dagsetningin sem slegin er inn hér notuð. - Veldu hnappinn Vista og stofna línur, til að mynda framleiðslulínur með þeim undirvörum o.fl. sem þarf til framleiðslunnar. Í glugganum sem birtist er m.a. hægt að velja hvort taka eigi undirvörurnar frá í birgðakerfinu.
Lestu meira um framleiðslulínurnar hér.
Bóka framleiðslu tilbúna
Framleiðslupöntunin er bókuð tilbúin með því að velja hnappinn Bóka tilbúið, annaðhvort undir Birgðir/Framleiðsla/Framleiðslupantanir, eða undir Framleiðslulínur.
Bóka að hluta tilbúið
Framleiðslupöntun má bóka tilbúna að hluta með því að velja hnappinn Bóka tilbúið undir Birgðir/Framleiðsla/Framleiðslupantanir.
Í glugganum sem birtist er hakað í reitinn Bóka að hluta tilbúið og í reitnum Magn er hægt að velja hversu mikið magn á að bóka tilbúið að hluta. Þegar hnappurinn Bóka tilbúið er valinn er þetta magn bókað tilbúið og magninu á framleiðslupöntuninni breytt í eftirstandandi magn.
Framleiðsla á verk
Einnig er hægt að bæta verknúmeri við framleiðslupöntunina, þannig að varan sé við bókun tilbúins sett á lager, tekin út aftur og færð á verkið. Sama aðgerð og þekkist úr innkaupum sem tengd eru verki.
Framleiðsluflokkar
Framleiðslupantanir má einnig tengja við framleiðsluflokk í reitnum Flokkur.
Framleiðsluflokkar eru stofnaðir undir Birgðir/Viðhald/Flokkar/Framleiðsluflokkar.
Lestu meira um framleiðsluflokka hér.
Prenta framleiðslupöntun
Hægt er að prenta út framleiðslupöntun með því að velja hnappinn Stofna skýrslu á tækjaslánni undir Birgðir/Framleiðsla/Framleiðslupantanir.