Pöntunarflokka er hægt að stofna og breyta undir Viðskiptavinur/Viðhald/Pöntunarflokkar.
Pöntunarflokkar eru notaðir til að skipta pöntunum í flokka. Það gæti t.d. verið pöntunarflokkur fyrir kvartanir, svo hægt sé að tilgreina á hverri pöntun hvort um kvörtunarpöntun er að ræða.
Pöntunarflokka má líka nota sem síu í aðgerðinni Fjöldauppfærsla, sem m.a. er notuð við fjöldareikningsfærslu áskriftarpantana. Lestu meira um Fjöldauppfærslu
Stofna pöntunarflokk
- Veldu Viðskiptavinur/Viðhald/Pöntunarflokkar
- Veldu hnappinn Bæta við færslu
- Fylltu út reitina Númer og Heiti
- Veldu hnappinn Vista
Tengja pöntun við pöntunarflokk
- Veldu Viðskiptavinur/Sala/Sölupantanir
- Veldu hnappinn Breyta á pöntun sem á að tengja við pöntunarflokk
- Veldu pöntunarflokkinn í reitnum Flokkur.
Reiturinn er sjálfgefið í rammanum „Pantanir“ - Veldu hnappinn Vista
Myndband um pöntunarflokka
Sjáðu myndbandið hér fyrir neðan um pöntunarflokka (á dönsku):
Myndband - Pöntunarflokkar