Fara skal í Viðskiptavinur/Skýrslur/Færslur. Í færslum er hægt að sjá yfirlit yfir allar bókaðar færslur viðskiptavina.
Hnappar í tækjaslánni
| Heiti |
Lýsing |
| Endurnýja |
Uppfærir allar færslur og breytingar |
| Jafnanir |
Veitir möguleika til að jafna færslur (t.d. greiðslu á móti reikning) eða enduropna þær jafnanir sem hafa verið gerðar. |
| Stafrænt fylgiskjal |
Opnar glugga með stafrænu fylgiskjali ef fylgiskjal hefur verið hengt við færslu. |
| Sía |
Hægt að búa til síu eftir dagsetningu, lykilnúmeri, heimilisfangi osfrv. |
| Hreinsa síu |
Fjarlægir síu |
| Snið |
Möguleiki er á að vista, eyða, breyta eða sækja vistuð snið. Lesa meira hér |
| Færslur fylgiskjals |
Sýnir allar færslur sem tilheyra viðkomandi bókun. |
| Bókað af |
Sýnir notandann sem bókaði upprunalega. |
| Reikningur |
Fer í reikningasafnið, þaðan sem t.d. er hægt að senda reikninginn aftur með pósti ofl. |
| Reikningslínur |
Sýnir bókaðar línur á reikningi. |
| Innheimtubréfaskrá |
Sýnir innheimtubréfaskrá varðandi færsluna sem var valin svo þú getir séð hvenær færslan hefur verið innheimt.
Athugið! Hnappurinn birtist aðeins ef hakað er við reitinn Vextir og gjöld undir Fyrirtæki/Viðhald/Val kerfiseininga |
| Allir reitir |
Birtir öll svæði valinnar færslu, óháð því hvaða reitir eru valdir á skjánum. |
| Festa / Stilla saman |
|
-