Í Report Generator er hægt að nota reiknaða reiti.
Reiknaður reitur er, eins og nafnið gefur til kynna, reitur þar sem hægt er að gera ýmsa útreikninga.
Þessir útreikningar geta annaðhvort verið reitur úr „Field List“ (einn af gagnagrunnsreitunum) eða útreikningur sem búinn er til í „Expression Editor“
Stofna reiknaðan reit
- Veldu Field List hægra megin í Report Generator
- Hægt er að setja reitinn í rótina með því að hægrismella á CompanyInfo og velja „Add calculated field“
- Reiturinn er nú settur í rótina, ásamt hinum reitunum.
- Hægt er að setja reitinn undir t.d. DebtorInfo með því að hægrismella á DebtorInfo og velja „Add calculated field“, og þá er reiturinn settur undir töfluna DebtorInfo.
- Ef hægrismellt er á eina af töflunum eða reiknaða reitinn er hægt að velja að bæta við (Add) eða breyta (Edit) völdum reit eða öllum reiknuðum reitum.
Stofna segð (Expression)
- Hægrismelltu á reiknaða reitinn og veldu „Edit Expression...“
- Expression editor opnast og hér er hægt að skrifa segðina.
- Til að forðast villur í því hvernig segðin er skrifuð er hægt að smella á þær aðgerðir og reiti sem nota á.
- Mundu að draga reitinn út á skýrsluna til að hann birtist.
Dæmi um segðir (Expressions)
Sýna eftirstöðvar afhendingar á reikningi/afhendingarseðli
Pantað magn - Afhent magn - er skrifað eins og hér fyrir neðan
[QtyOrdered]-[InvoiceQty]
Þvinga hástafi í t.d. heiti skjals
Kóðinn hér fyrir neðan sýnir t.d. reikning með hástöfum REIKNINGUR
Upper([Dokumentnavn])
Bil á milli Proforma og Faktura
Ef óskað er eftir bili á milli Proforma og Faktura í Proformafaktura má skrifa það eins og hér fyrir neðan
Upper(Iif(Contains([Dokumentnavn], 'Pro'), Concat('Proforma ',Substring([Dokumentnavn], 8 ) ) , [Dokumentnavn]))
Samsettir reitir
Ef sameina á tvo reiti í einum titli (label) má nota aðgerðina „Concat“
Concat er notað fyrir reitina sem á að sameina, aðgreinda með , (kommu). Ef óskað er eftir bili er notað ' (úrfellingarmerki), t.d. ' '
Hér fyrir neðan eru heiti afbrigðis 1 og heiti afbrigðis 2 sett saman í sama reit/titil, aðgreind með bili.
Concat([DebtorInfo.InventoryTransInvoice.Variant1Name], ' ', [DebtorInfo.InventoryTransInvoice.Variant2Name])