Flytja skrá inn í dagbók
Hægt er að flytja færsluskrá beint inn í almenna dagbók.
![]()
Hér er dæmi um færsluskrá:
Viðskiptavinur;VSK kóði;Lykill viðskiptavinar;Reikningsnúmer;Reikningsdagur;Nafn;Reikningsfjárhæð;Gjaldmiðill;
Debitor;U25;1010;4217;29-06-2017;Kunde1;2.061,25;dkk;
Debitor;U25;1010;4218;29-06-2017;Kunde2;1.323,75;dkk;
Debitor;U25;1010;4219;29-06-2017;Kunde3;1.333,75;dkk;
Dálkur 1 inniheldur Gerð lykils. (Sem þarf að samsvara gildi í Uniconta). Sjá undir bókhaldslyklar.
Dálkur 2 inniheldur VSK kóða. (Sem þarf að samsvara gildi í Uniconta). Sjá undir VSK-kóða.
Dálkur 3 inniheldur númer eða lykil viðskiptavinar (Sem þarf að samsvara gildi í Uniconta). Sjá undir Viðskiptavinur.
Til að fá færsluskrána inn í Uniconta þarf að setja upp innflutningssniðmát.
Smelltu á “Flytja inn skrá”
![]()
Sláðu tölurnar inn í rétta reiti. T.d.:
Dagsetning = 6
Gerð lykils = 1
Lykill = 3
Aðgreiningartákn reita: Uniconta finnur sjálft aðgreiningartákn reitanna, en einnig má slá það inn.
ATH! Í reitinn Texti er hægt að flytja inn 50 stafi. Ef textinn í skránni er lengri eru aðeins fyrstu 50 stafirnir fluttir inn.
Með Sniðmát má vista skilgreininguna og sækja hana aftur síðar. Skilgreiningin er vistuð á notandann og virkar því í öllum fyrirtækjum. Univisor-notandi þarf því aðeins að vista skilgreiningu, t.d. fyrir innflutning launa, einu sinni.
Að uppsetningu lokinni
Smelltu á „Sækja gögn“. Skráin er þá sótt í forskoðun áður en færslurnar fara í dagbókina, svo þú getir séð hvort innflutningurinn lítur út eins og búist var við. Ef svo er smellir þú á hnappinn Vista.
ATH: Hægt er að flytja inn upphæðir í gjaldmiðilsdálkana. Dálkurinn í krónum er ekki uppfærður fyrr en við bókun. Notaðu „Hermun“ í dagbókinni til að sjá gengið sem verður notað.