Valmyndir stofnaðar
![]()
Í Uniconta getur hvert fyrirtæki bætt eigin valmyndaratriðum við aðalvalmyndina og í tækjaslám í hverri skjámynd. Þetta er gert í valmyndinni "Verkfæri/Valmyndir/Aðalvalmynd" og í "Verkfæri/Valmyndir/Tækjaslá":
Stofna eigið valmyndaratriði í aðalvalmynd
Fara í Verkfæri / Valmyndir / Aðalvalmynd
Veldu hvar á að stofna valmyndaratriðið
Hér er sýnt [Viðskiptavinur]
Ef gera á valmyndaratriðið að undirvalmynd skal smella á [Viðskiptavinur]
Til að stofna valmyndaratriði. Smelltu á ![]()
Fylla út
![]()
| Kvaðningartexti | Færið inn heitið sem valmyndaratriðið á að hafa. |
| ControlType | Veldu gerð valmyndaratriðis sem óskað er eftir |
| ReportControl | Kallar á skýrslu sem skilgreind er í Report Generator |
| UserDefinedTableControl | Kallar á stofnaða töflu í fyrirtækinu |
| ExportControl | Notið valmyndaratriði til að flytja út tiltekna töflu. Töfluheitið er ritað í "Argument". T.d. DebtorOrderClient |
| ImportControl | Notið valmyndaratriði til að flytja inn tiltekna töflu. Töfluheitið er ritað í "Argument". T.d. DebtorOrderClient |
| ExternalCommand | Ræsa ytra forrit. Skrifa t.d. Notepad.exe í "Argument." Notepad mun ræsa sig þegar smellt er á valmyndaratriðið. |
| Plugin | Ræsir Uniconta viðbót (plugin) |
| Form | Opnar Uniconta form. |
| Control | Veldu stýringuna |
| Línunúmer | Sláðu inn í hvaða röð valmyndaratriðið á að vera |
| Argument | Hér er skifað t.d. töfluheiti. |
| Fela | Hér er hægt að gera valmyndaratriðið óvirkt svo það birtist ekki. |
| Kenni fyrirtækis | Með því að velja kenni fyrirtækis hér er hægt að opna skjámynd sem sækir gögn í annað fyrirtæki án þess að þurfa að skipta yfir í fyrirtækið. |
Eyða eigin stofnuðu atriði í Aðalvalmynd
Fara í Verkfæri / Valmyndir / Aðalvalmynd
![]()
Finndu valmyndaratriðið sem á að eyða með því að opna valmyndaratriðin með því að smella á litlu svörtu örina.
Í dæminu er atriðið "Web Call" undir Fjárhagur
Smellið á og valmyndaratriðinu verður eytt. ![]()
Smelltu á [Vista]. Valmyndaratriðinu hefur nú verið eytt.