Í Uniconta geturðu stofnað afbrigði. Þú notar afbrigði eins og stærð, lit, hæð, breidd, dýpt o.s.frv.
Hægt er að búa til allt að 4 milljarða afbrigði.
ATH! Uniconta styður ekki afbrigði fyrir raðnúmer og lotunúmer.
Veldu Lager / Viðhald / Afbrigði / Afbrigði til að skoða yfirlit yfir afbrigði.
Velja fjölda afbrigða með því að smella upp og niður á örvarnar
Í dæminu hér að neðan eru 2 afbrigði valin, Litur og Stærð. Það er undir hverjum og einum notenda komið hvað afbrigðin eiga að heita.
Smella á 'Vista' til að geyma afbrigðin.
Í afbrigðisglugganum getur þú valið á milli afbrigðisgerða í fellivalmynd og stofnað afbrigði.
Velja t.d. Litur í fellivalmyndninni.
Smella á 'Bæta við afbirgðisgerð' og þá birtist ný lína þar sem slegið er inn
'Afbrigðisgerð' og 'Heiti'. Reiturinn 'Afbrigðisgerð' getur innihaldið 10 stafi og 'Heiti' getur innihaldið 40 stafi. Smella á 'Vista' til að geyma afbrigðin.
Eyða Hér er hægt að eyða afbrigðinu.
ATH: Ekki er hægt að eyða afbrigðum með færslum.