Í valmynd fyrirtækis Fyrirtæki/Viðhald/Breytinga-URL er nú hægt að stofna URL sem sendir skilaboð þegar grunngögnum er breytt svokölluðum webhooks.
Skilaboðin geta ýmist átt við breytingar á öllum grunngögnum eða breytingar á gögnum í afmörkuðum töflum.
Þegar ný færsla er stofnuð eða uppfærð kallar Uniconta þjóninn á URL með upplýsingum um Fyrirtæki, Töflu, Lykil, RowId og Aðgerð.
Það er einnig hægt að sjá birgðabreytingar með því að nota „InvItemStorage“ töfluna.
Í webhooks er hægt að fá sjálfa færsluna til baka í kallinu sem Json-skjal. Þá þarf ekki að leita í Uniconta til að fá nýju gildin. Ef þessi aðferð er notuð kemur Json-færslan sem hluti af „body“. Aðferðin er virkjuð með því að velja 'Post' í reitnum 'Post'.
Hér má sjá yfirlit yfir þær töflur sem við getum notað URL breytingarnar fyrir. Þar sem þær eru uppfærðar stöðugt verður þú að sjá núverandi skrá í Uniconta.
![]()
Með þessu er hægt t.d. uppfæra birgðir og vörunúmer í vefverslun. Í stað þess að uppfæra einu sinni á sólarhring gerist uppfærslan strax.
Hvernig á að nota Breytinga URL
Fara skal í Fyrirtæki/Viðhald/Breytinga-URL
![]()
| Heiti reits | Lýsing |
| Job | Veldu aðgerðina sem þú vilt fá tilkynningu um með breytinga-URL. |
| Tafla | Veldu töfluna sem þú vilt fá tilkynningu um með breytinga-URL. |
| Url | Sláðu inn URL-ið sem á að kalla á við breytingar á Job eða töflu. |
| Argument | |
| Post | |
| Villa | Ef villa hefur komið upp í URL-kallinu er hakað í þennan reit. |
| Villuboð | Lýsing á villunni. |
| Síðast | Dagsetning og tími síðustu keyrslu. |
Valmynd í Breytinga-URL
- Bæta við færslu
- Bætir við línu þar sem þú getur tilgreint Breytinga-URL
- Eyða færslu
- Eyðir valdri línu
- Vista
- Vistar Breytinga-URL
- Endurnýja
- Uppfærir skjámyndina með síðustu breytingum
- Snið
- Breytir sniði formsins.
ATH: Ekki er hægt að breyta URL-færslu. Ef breyta þarf henni verður að stofna færsluna/línuna upp á nýtt.
Stofna Breytinga-URL
Til að stofna Breytingar-URL er gert eftirfarandi:
- Smelltu á ‘Bæta við færslu’.
- Veldu Töfluna sem á að vakta breytingar úr valmynd. Sjá töfluna í fellivallista
- Einnig er hægt að sjá hvenær Vinnu er lokið, t.d. Endurútreikningur birgða (Recalc Storage).
- Slá inn URL sem breytingarnar eiga að sendast á. Notaðu mögulega Webhook.site til að prófa á móti.
- Smelltu á ‘Vista’ til að vista færsluna.
![]()
Hér höfum við valið að vakta breytingar á töflu Viðskiptavina (Debtor) og senda breytingar á valið URL.
![]()
Hér höfum við svo sett upp ‘Breytinga- URL’, en engin takmörk eru á fjölda.
Ekki þarf að fylla út Argument. Það er aðeins færibreyta sem sett er í URL-ið og þú færð til baka í kallinu.
Ef breytinga-URL bilar
Ef villa er í breytinga-URL þarf að eyða henni og stofna nýja til að hún virki aftur.
Uppsetning á Vefþjóni
Ef við gefum okkur að þú sért með vefverslunina www.vefverslun.is/unicontalog færð þú gögn með eftirfarandi hlekk http://www.vefverslun.is/unicontalog?CompanyId=123&Table=InvItem&RowId=543&Key=1000&Action=Update
http://www.mywebshop.dk/unicontalog?CompanyId=123&Table=InvItem&RowId=543&Key=1000&Action=Update
Vefþjóninn tekur þá á móti :
- Kenni fyrirtækis (CompanyID)
- Töflu (Table)
- Raðnúmeri (RowId)
- Lykli (Key)
- Aðgerð (Operation)
Prófaðu Webhook þinn
Til að prófa uppsetningu veftengils geturðu notað Webhook.site.
Farðu á þessa vefsíðu og fylgdu leiðbeiningunum þar.