Öllum skýrslum og skjámyndum er hægt að breyta með Sniðum áður en þær eru prentaðar. Hægt er að:
- Færa reiti til
- Fjarlægja/bæta við reitum
- Ákveða breidd reita
- Raða
- Sía og leita o.fl., allt áður en þú prentar og/eða vistar.
Þannig getur þú á auðveldan og fljótlegan hátt aðlagað efnið og útlitið áður en flutt er út í skrá.
Það þýðir að ekki þarf að reiða sig á fast skýrsluútlit eða fá aðstoð við að búa til sérstaka skýrslu út frá skjámynd. Þú getur aðlagað efnið og skýrsluna upp á eigin spýtur á auðveldan og fljótlegan hátt.
Lestu meira um snið hér.
Dæmi – Prenta bókhaldslykil
- Opnaðu bókhaldslykilinn undir Fjárhagur/Bókhaldslykill
- Veldu Prenta-táknið á tækjastikunni efst á skjámyndinni.
- Því næst getur þú valið að gefa útprentuninni fyrirsögn og undirfyrirsögn og breytt leturstærð, spássíum o.fl.
Sjá lýsingu á reitunum hér fyrir neðan. - Því næst birtist útprentunin á skjánum:
- Á skjámyndinni þar sem útprentunin birtist getur þú valið prentaratáknin í borðanum til að senda útprentunina í prentarann þinn.

Ef þú velur prenttáknið án eldingar getur þú valið prentara.
Ef þú velur prenttáknið með eldingunni er útprentunin send í sjálfgefna prentarann þinn.
Myndband – Kynning á útprentunum
Horfðu á þetta myndband um útprentanir: Myndband / Kynning á útprentunum (fjárhagsskýrslur, hreyfingayfirlit viðskiptavina, viðskiptavinalisti)
Lýsing á reitum við prentun lista
| Fyrirsögn og undirfyrirsögn | Sláðu inn fyrirsögn og/eða undirfyrirsögn ef þú vilt, sem prentast efst á útprentuninni |
| Leturgerð | Veldu þá leturgerð sem þú vilt |
| Leturstærð | Veldu þá leturstærð sem þú vilt. Sjálfgefið er 9 |
| Línubil | Veldu þá hæð sem þú vilt á hverri röð (þ.e. línum á útprentuninni). Sjálfgefið er 20. |
| Langsnið | Hakaðu í þennan reit ef útprentunin á að vera í langsniði í stað skammsniðs. |
| Sýna línur | Hakaðu í þennan reit ef aðskilja á raðirnar með striki á milli hverrar raðar. |
| Spássíur í skýrslu | Sláðu inn þær spássíur sem þú vilt. |
Breyta spássíu, pappírsstærð o.fl.
Undir tákninu Síðuuppsetning getur þú breytt sniði útprentunarinnar, svo sem pappírsstærð, spássíum o.s.frv. ![]()