Nú er orðið einfalt og þægilegt að afrita gögn til og frá Uniconta með copy/paste. Þetta er fljótleg leið til að afrita og líma gögn án þess að þurfa fyrst að flytja út eða flytja inn.
Þú getur afritað úr og límt inn í svokallað grid, þ.e. skjámynd. Þegar afritað er úr Uniconta-gridi er innihaldið vistað á Clipboardinu og má endurnýta t.d. í Excel, Word o.s.frv. Einnig er hægt að líma það inn í samhæfð grid í Uniconta, t.d. úr pantanalínur-gridinu í innkaupalínur-gridið ef þú þarft að panta vörur út frá viðskiptapöntun eða öfugt.
Kannski þarftu allar stöður úr bókhaldslyklinum í nýja áætlun í Excel; þá er auðvelt að afrita allt bókhaldslykill-gridið og líma það í excel-skjal.
ATH.: Mundu að þegar Copy/Paste-aðgerðin er notuð verða dálkafyrirsagnir að vera nákvæmlega eins, þar með talið há- og lágstafir. Einnig er aðeins hægt að afrita úr forritum sem nota dálka, t.d. Uniconta sjálfu og Excel.
Afritun á klemmuspjald
Efst í hægra horni í Uniconta er hnappur: Afritun á klemmuspjald (clipboard).
Hnappurinn býður upp á eftirfarandi valkosti:
Sjálfgefin afritun á „Klemmuspjald“
Valdar línur. Línur eru valdar með því að halda Ctrl-takkanum niðri og smella á/velja línur með músinni.
Velja allt afritar allt gridið, allt sem skjárinn getur sýnt, hvort sem það er sýnilegt eða ekki. Ef þú ert t.d. í bókhaldslyklinum eða viðskiptamannaskrá, mun Velja allt afrita allan bókhaldslykilinn eða alla viðskiptamannaskrána með sýndum reitum, jafnvel þótt þú hafir ekki skrollað í gegnum allar færslurnar og alveg niður í botn.
„Microsoft Word“ afritun á „Klemmuspjald“
Valdar línur. Línur eru valdar með því að halda Ctrl-takkanum niðri og smella á/velja línur með músinni. Afritast á Word-töfluformi.
Velja allt afritar allt gridið, allt sem skjárinn getur sýnt, hvort sem það er sýnilegt eða ekki. Ef þú ert t.d. í bókhaldslyklinum eða viðskiptamannaskrá, mun Velja allt afrita allan bókhaldslykilinn eða alla viðskiptamannaskrána með sýndum reitum, jafnvel þótt þú hafir ekki skrollað í gegnum allar færslurnar og alveg niður í botn. Afritast á Word-töfluformi.
Fyrir ofangreindar aðgerðir gildir: Allt úr sýndum dálkum fylgir með. Með öðrum orðum geturðu sett inn, falið og sýnt nákvæmlega þá reiti sem þú vilt hafa með í afritun á klemmuspjald.
Þegar þú hefur afritað innihald á klemmuspjaldið geturðu opnað Word, Excel, Notepad o.s.frv. og valið „Paste“ (líma). Þetta er fljótleg leið til að afrita gögn án þess að þurfa fyrst að flytja út.
Jafnvel skjámyndir með mörgum færslum er hægt að afrita á klemmuspjaldið. Í Excel er takmörkun upp á 1.000.000 færslur.
Hnappurinn Tæma klemmuspjald eyðir öllum gögnum í „Klemmuspjaldi“.
Setja inn frá Excel. Með þessum valkosti eru gögn „límd“ úr „Klemmuspjaldi“ inn í Uniconta.
Uppfæra frá excel.
Með aðgerðinni „Uppfæra frá excel“ er hægt að laga gögn úr Uniconta í Excel og afrita þau aftur inn í Uniconta, þannig að þau verði uppfærð.
Uppfært út frá lykilgildum; t.d. er hægt að uppfæra bókhaldslykil út frá lykilnúmeri, þar sem lykilnúmerið er einkvæmur lykill.
ATH.: Ef reynt er að uppfæra gildi sem eru ekki til eða sem ekki er aðgangur að (t.d. læst), verður engin uppfærsla á gögnum. Ekki einu sinni á „réttu“ línunum.
Ef enginn einkvæmur lykill er til staðar er hægt að uppfæra línu fyrir línu. Þá er hægt að uppfæra færslur sem eru í sömu röð í Excel og Uniconta.
ATH.: Þessi aðferð er óöruggari.
Afrita á milli skjámynda í Uniconta
Einnig er hægt að líma innihald klemmuspjaldsins inn í Uniconta, þó með ákveðnum takmörkunum.
Hægt er að afrita innihald inn í öll grid þar sem hægt er að stofna línur. Það á við um sjóðbók, pantanalínur, birgðabók og aðra staði þar sem hægt er að stofna línur. Gridin þurfa þó að vera „samhæfð“. Ekki er hægt að líma úr bókhaldsbók í pantanalínur þar sem þau eru ekki „samhæfð“.
Innkaupalínur og pantanalínur eru samhæfðar. Reikningslínur og birgðafærslur eru einnig samhæfðar við pöntunar- og innkaupalínur. Það þýðir að þú getur fundið gamlan reikning, afritað línurnar og límt þær inn í nýja sölupöntun.
Hér er dæmi um hvernig þú getur nýtt nýstofnaða pöntun, eða hvaða pöntun sem er, til að stofna innkaupapantanalínur með Copy & Paste. Þetta er hentugt fyrir vörur sem þú pantar aðeins eftir þörfum („buy on demand“) og ert ekki með á lager.
Dæmi um Copy/Paste
Hér hefur verið stofnuð ný sölupöntun með þessum pantanalínum:
Allt þarf að panta hjá heildsalanum þar sem við erum ekki með lager.
- Stofnaðu nýja innkaupapöntun og opnaðu innkaupalínur.
- Settu bendilinn á fyrstu innkaupalínu og ýttu á CTRL+V (Paste), eða veldu „Setja inn frá Excel“.
Þá afritast pantanalínurnar yfir í innkaupapöntunina. Stilltu eftir þörfum verð og afsláttarprósentu.
Afrita aðeins valdar línur
Þú getur líka afritað eina línu eða valdar línur.
Lína er valin með því að smella á línuna og velja Valdar línur í Klemmuspjald-teikninu.
Margar línur eru valdar með því að halda Ctrl-takkanum niðri og velja þær línur sem óskað er eftir:
Hér hefur pöntunin verið stækkuð með mörgum línum; aðeins valdar línur á að afrita í nýja innkaupapöntun.
Ctrl-takkanum er haldið niðri og smellt hefur verið á línurnar sem eru auðkenndar með gulu.
Smelltu á Klemmuspjald-teiknið í borðanum og veldu: Valdar línur.
Eftir það eru aðeins valdar línur afritaðar á klemmuspjald og hægt að líma þær í innkaupapöntun o.fl.