Allt sem birtist og er prentað í útprentunum og skjámyndum í Uniconta er hægt að flytja út og vista á ýmsum skráarsniðum.
Öllum skýrslum og skjámyndum er hægt að breyta áður en þær eru vistaðar sem skrá. Hægt er að:
- Færa reiti til
- Fjarlægja/bæta við reitum
- Ákveða breidd reita
- Raða
- Sía og leita o.fl., allt áður en þú prentar og/eða vistar
Þannig getur þú á auðveldan og fljótlegan hátt aðlagað efnið og útlitið áður en flutt er út í skrá.
Dæmi
Bókhaldslykill fluttur út í skrá: Opnaðu bókhaldslykilinn undir Fjárhagur/Bókhaldslykill og smelltu á Prenta-táknið á tækjastikunni efst á skjámyndinni.
Þá birtist gluggi þar sem hægt er að gera breytingar á útlitinu.
Því næst opnast efni skjámyndarinnar/útprentunarinnar í „forskoðun“.
Hægt er að vista skjöl á þeim skráarsniðum sem eru í boði. Efst til hægri í forskoðunarglugganum er táknið Flytja út skjal.
Smelltu á örina hægra megin við táknið Flytja út skjal til að sjá yfirlit yfir þau skráarsnið sem eru í boði.
Ef þú smellir bara á táknið Flytja út skjal (án þess að opna yfirlitið yfir sniðin) er síðast valda sniðið notað. Ef þú notaðir t.d. síðast XLS-skrá man Uniconta það val við næsta útflutning.
Veldu það snið sem þú vilt. Eftir því hvaða snið er valið opnast gluggi þar sem þú getur valið fleiri stillingar. Smelltu á OK og veldu síðan staðsetningu og heiti skrárinnar. Þá er útprentunin vistuð sem skrá með völdu heiti á þeim stað sem þú valdir.
Einnig er hægt að nota táknin Flytja út í Excel, Word eða CSV til að vista gögn í ytri skrá.
En eins og sést hér að ofan er úr fleiri sniðum að velja undir Prenta.
Hér að ofan er sýnt hvernig bókhaldslykillinn er fluttur út í ytri skrá. Það sama er hægt að gera með viðskiptavini, lánardrottna, vörur o.fl.
Einnig er hægt að flytja allar skýrslur út í ytri skrá.