Uppsetning vaxtaflokka
Hægt er að reikna vexti reglulega á fjárhagslykla.
Í Fjárhagur/Viðhald/Vaxtaflokkar er hægt að stýra vaxtaprósentum og mótlyklum sem slík bókun byggir á.
Uppsetning - Bókhaldslykill
Til þess að hægt sé að nota vaxtaflokkinn þarf hann að vera tengdur við einn eða fleiri fjárhagslykla, sbr. hér að neðan
Lýsing á hnöppum í tækjaslánni
| Hnappur | Lýsing |
| Bæta við færslu | Bæta við nýjum vaxtaflokki |
| Eyða færslu | Eyðir vaxtaflokki |
| Vista | Vistar breytingarnar þínar |
| Endurnýja | Hleður vaxtaflokkunum inn aftur |
| Allir reitir | Sýnir alla reiti á viðkomandi lykli og innihald þeirra. |
Lýsing á reitum
Hér að neðan er lýsing á reitunum sem sjá má undir vaxtaflokkunum
| Heiti reits | Lýsing |
| Gjaldakóði | Stutt tilvísun og einstök auðkenning vaxtaflokksins. Þessi kóði er tengdur sem vaxtaflokkur við þá fjárhagslykla sem reikna á vexti á. |
| Heiti | Heiti vaxtaflokksins |
| Mótlykill | Mótlykill þar sem bóka á reiknaða vexti, yfirleitt vaxtagjöld |
| % | Vaxtaprósenta |
| Gera óvirkt | Gera vaxtaflokk óvirkan tímabundið - þegar vöxtum er bætt við verður hann ekki reiknaður á lykla sem nota þennan vaxtaflokk |
| Lykill | Einnig er hægt að færa vextina á annan lykil. Þannig má t.d. líka nota vaxtaaðgerðina til að dreifa kostnaði reglulega á tímabil. |
Bæta við vöxtum
Þegar uppsetningu vaxtaflokka og bókhaldslykils er lokið er hægt að bæta við vöxtum.