Valmyndarliðurinn 'Eyða eldri reikningum og færslum' gerir kleift að eyða gömlum reikningum og þjappa saman birgðafærslum aftur í tímann frá tiltekinni dagsetningu.
Sláðu inn dagsetninguna sem þjappa á birgðafærslunum saman til. Dagsetningin þarf að vera a.m.k. 5 ár aftur í tímann.
ATH! Innfluttum færslum er ekki þjappað saman. Þeim er eytt.
ATH! Verkfærslur breytast ekki.
ATH! Áður en þú smellir á Í lagi þarftu að vera viss um að þú viljir eyða þessum reikningum og þjappa birgðafærslunum saman, því það er ekki hægt að afturkalla. Þú getur t.d. pantað afrit og framkvæmt eyðinguna í afritsfyrirtæki til að sjá hvort niðurstaðan verði eins og óskað er.
Birgðafærslunum er þjappað saman og þær vistaðar á fyrsta degi eftir dagsetninguna sem slegin var inn.
Birgðafærslunum er þjappað saman eftir vörunúmeri, afbrigði, vöruhúsi, staðsetningu og lykli viðskiptavinar/lánardrottins.
Færslurnar þekkjast á því að þær hafa ekki bókunarnúmer.
Ekki sést lengur reikningsnúmer á þessum færslum.
Allar samanþjappaðar birgðafærslur eru teknar saman í þrjár birgðafærslutegundir: Viðskiptavinur, Lánardrottinn og Opnun.
Tilheyrandi reikningum er eytt úr reikningasafninu. Það gildir bæði um innkaup og sölu.
Færslur viðskiptavina og lánardrottna haldast í færslum undir Viðskiptavinur og Lánardrottinn, en tengillinn á reikninginn verður auður og tengillinn á reikningslínur verður ekki lengur virkur.